28janúar
Breyting á göngudögum!!! - nú göngum við á þriðjudagskvöldum í stað miðvikudags..!!
En næsta ganga verður í Elliðaárdalnum þar sem hún féll niður í síðustu viku.
Hittumst við Sprengisand/Atlantsolíu/Pizza Hut og göngum þar í undirgöngin og niður í Elliðaárdal.
Byrjum að ganga kl. 20:00
22janúar
Næsta ganga verður farin í Elliðaárdalnum.
Við hittumst við Sprengisand/Pizza Hut/Atlantsolíu og leggjum bílum þar. Göngum svo í undirgöngin og upp með Elliðaánni.
Mæting kl. 20:00
Kv. Íris
08nóvember
Næsta ganga verður farin á Keili.
Hittumst þar sem gönguleiðin byrjar, á bílastæðinu. Keyrum bara beint eftir afleggjaranum að Keili þangað til að við komum að bílastæði.
Hittumst þar á laugardaginn kl. 13:00
31október

Næsta laugardag (3.nóv) verður farin ganga upp á Esjutopp.
(Þeir sem vilja geta að sjálfsögðu hætt fyrr..)
Lagt verður af stað frá rótum Esjunnar kl. 11:00.
Spáir ágætu veðri fyrri partinn á laugardaginn, þannig að allllllirrrr að mæta :) en muna að klæða sig vel!! 
Kv. Íris
10október
Næsta ganga verður mánudaginn 15. október.
Við hittumst við Árbæjarlaugina og löbbum þar 10 km hringinn. Þar sem svæðið er upplýst ætlum við að hittast kl. 20:00.
Kv. Íris
03október
Nýjar myndir úr Skálafellsgöngunni
komnar í myndaalbúmið hér til hægri !!!
03október
Hverjum langar í fjallgöngu í dag?????????
Við ætlum að fara á Skálafell kl 17:30, létt/erfitt fjall sem allir geta farið á! Mjög skemmtilegt og svakalega flott útsýni af toppnum!!!! Hver kemur?????
Kv. Íris 
28september
Næsta ganga verður mánudaginn 1.október.
Við hittumst við Árbæjarlaug og göngum stóra hringinn. Þar sem leiðin er upplýst förum við af stað kl. 20:00
Kv. Íris Hlín
10september
Þessari ákveðnu göngu verður frestað þar sem leiðsögumaðurinn er lasinn en um að gera að skella sér eitthvert annað samt ;)
Kv. Berglind
06september
Önnur tilraun :)
Næsta ganga verður í Garðabænum, Heiðmörk.
Við ætlum að ganga Búrfellsgjána. Gangan ætti að taka um 1,5 - 2 klst.
Við hittumst kl. 18:00 á bílastæðinu við Maríuhella (Garðabæjarmegin).
http://heidmork.is/kort/heidmork/heidmork_tl.asp
Á myndinni er það sem sagt neðra P-ið sem við ætlum að hittast við.
Oddný mun leiða okkur í gegnum þessa skemmtilegu göngu :)
Kv. Berglind